kastro.
← Öll þjónusta

Skýjalausnir og innviðir

Innviðir sem henta þínum rekstri.

Skipulagning og framkvæmd verkefna í skýjaþjónustu, netþjónum og netkerfum. Val á þjónustuaðilum byggir á þínum þörfum, kostnaði og kröfum um staðsetningu gagna.

Athuga svigrúm fyrir verkefni ↗

Staða nýrra verkefna: Takmarkað svigrúm.

Það sem við getum aðstoðað við

Hönnun og áætlanagerð

Kortlagning kerfa, samanburður hýsingarkosta og hönnun viðeigandi uppsetningar.

Kerfisflutningar

Kerfisflutningar með skýrri verkáætlun, prófunum og leið til að fara aftur í fyrri uppsetningu ef þörf krefur.

Netþjónar og netkerfi

Uppsetning sýndarumhverfa, tenginga og aðgangs eftir þörfum verkefnisins.

Skjölun og afhending

Skýrar kerfismyndir, skráðar stillingar og stjórn á aðgöngum hjá þínu teymi.

Skýrt umfang frá upphafi.

Við ákveðum hverju þarf að breyta, hverju við skilum og hvernig verkið er afhent. Tímasetningar og verð liggja fyrir áður en vinna hefst.

  1. Umfang

    Stutt samtal um stöðuna og hvað þig vantar. Þú færð skriflegt umfang, tímaáætlun og verð áður en nokkuð hefst.

  2. Vinna

    Yfirferðin eða innleiðingin sem samið var um. Við höldum þér upplýstum á leiðinni og breytum engu utan umfangsins.

  3. Afhending

    Skriflegar niðurstöður eða skjölun, forgangsraðaður listi yfir næstu skref og yfirferð með teyminu þínu.

Beint samband.

Samhliða eigin vöruþróun tökum við að okkur afmörkuð verkefni fyrir fyrirtæki. Umfang og tímasetningar eru staðfest áður en vinna hefst.

Athuga svigrúm fyrir verkefni ↗andri@kastro.is

Takmarkað svigrúm.